.png)
Þetta byrjaði allt með einni greiðslu í Skaftafelli.
Fyrir níu árum lagði gestur bílnum sínum í Skaftafelli, greiddi lítið bílastæðagjald og gekk af stað í átt að jöklinum.
Engin opnunarhátíð. Engin fréttatilkynning. Bara einn gestur, eitt bílastæði og ein greiðsla.
En fyrir Parka var þetta stór stund.
Þetta var fyrsta greiðslan í sögu Parka og upphafið að hugmynd sem við trúum enn á í dag: að þeir sem heimsækja stað geti um leið lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og varðveislu hans, svo komandi kynslóðir fái einnig að njóta hans.
.png)
Á þessum tíma var ferðaþjónusta á Íslandi í miklum vexti. Skaftafell, ein helsta gáttin að Vatnajökli, tók á móti sífellt fleiri gestum með hverju árinu. Með auknum fjölda fylgdi meira álag á bílastæði, göngustíga, aðstöðu og náttúruna sjálfa.
Innviðirnir þurftu að halda í við þessa hröðu þróun.
Hugmyndin á bak við Parka var einföld: að auðvelda gestum að greiða lítið gjald og skapa þannig tekjur sem geta stutt við rekstur, viðhald og áframhaldandi uppbyggingu áfangastaðarins.
Ein bílastæðagreiðsla virðist kannski ekki skipta miklu máli. En þúsundir lítilla greiðslna geta saman haft mikil áhrif.
Þær hjálpa rekstraraðilum að fjárfesta í stígum, bílastæðum, snyrtingum og öðrum innviðum sem gera áfangastaði öruggari, skipulagðari og betur í stakk búna til að taka á móti gestum. Innviðum sem hjálpa jafnframt til við að vernda náttúruna og skapa betri staði fyrir bæði gesti og heimafólk.
.png)
Skaftafell var upphafið.
Í dag vinnur Parka með rekstraraðilum víða um Ísland og hjálpar áfangastöðum að takast á við aukinn fjölda gesta og skapa tekjur sem nýtast til að hlúa að svæðunum og byggja þau upp til framtíðar.
Enginn ferðast um Ísland sérstaklega til þess að taka mynd af nýrri snyrtingu eða vel skipulögðu bílastæði. En það eru einmitt þessir innviðir sem gera fallegum og fjölsóttum stöðum kleift að taka á móti þúsundum gesta án þess að glata því sem gerði þá þess virði að heimsækja í upphafi.
Fyrir okkur hefur Parka því aldrei bara snúist um að greiða fyrir bílastæði.
Parka snýst um að heimsóknir gesta geti lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og verndunar staðarins.
Betri innviðir. Betri upplifun gesta. Betri vernd þeirra staða sem fólk ferðast til að sjá. Og sterkari áfangastaðir fyrir samfélögin í kring.
Níu árum síðar er Skaftafell enn með okkur.
Markmiðið er enn það sama, en verkfærin eru betri, tæknin hefur þróast og lærdómurinn á þessum níu árum verið ómetanlegur.
Nú er Parka að stíga sitt næsta stóra skref.
Það sem hófst með einni bílastæðagreiðslu undir Vatnajökli er að færast út fyrir landsteinana þegar við stígum okkar fyrstu skref í að aðstoða áfangastaði á Írlandi og í Bretlandi við að skilja og sinna gestum sínum betur.
Ólíkir staðir. Sambærilegar áskoranir. Þó kannski aðeins færri jöklar.
Hugmyndin er enn jafn einföld:
Að hjálpa þeim sem annast staðinn að skapa þær tekjur sem þarf til að geta haldið áfram að hlúa að honum.
Níu árum eftir fyrstu greiðsluna viljum við því segja takk.
Takk Skaftafell fyrir að hafa verið með okkur frá upphafi.
Takk til landeigenda og rekstraraðila sem voru tilbúnir að taka sénsinn á ungu íslensku sprotafyrirtæki.
Og takk til allra þeirra gesta sem hafa lagt bílnum, greitt og gengið af stað til að upplifa eitthvað fallegt.
Ein greiðsla er kannski lítil.
En saman geta þær hjálpað okkur að byggja upp sjálfbærari staði.
Fyrir gestina. Fyrir heimafólkið. Og fyrir komandi kynslóðir.