Einfaldara með Parka

Þægilegri leið til að greiða bílastæðagjöld um allt land.
Treyst af
50,000+
Active Parka users

Parka í 3 skrefum

1

Veldu bíl

Þú getur valið, breytt eða bætt við nýju bíl með því að ýta á bílnúmerið í appinu.
2

Veldu staðsetningu

Þú sérð skilti á öllum bílastæðum þar sem koma fram nafn og svæðisnúmer bílastæðis.
3

Greiða

Þú greiðir með því að velja leggja hér og staðfesta greiðslu eða skrá inn og úr bílastæði.

Þú finnur Parka

Í borg og bæ

Ef það er gjaldskylda, eru góðar líkur á því að þú getir greitt með Parka.

Á ferð um landið

Þú getur greitt bílastæðagjöld með Parka á vinsælum áfangastöðum og flugvöllum um allt land.

Í bílastæðahúsum

Fyrirhafnarlaus aðgangur að bílastæðahúsum. Nýttu Parka appið til að einfalda greiðslur.
Þú getur virkjað Keyrt&Kvitt fyrir sjálfvirkar greiðslur í völdum bílastæðahúsum.
Meira um Keyrt&Kvitt

Parka mest notaða bílastæðaappið á Íslandi

Parka notendur
343,984
Bílastæði
82
Tjaldsvæði
38
Bílaþvottastöðvar
14

Algengar spurningar

Hér getur þú nálgast svör við helstu spurningum varðandi okkar þjónustu.
Hvar og hvernig virkar Keyrt&Kvitt? 
Með Keyrt&Kvitt virkjar þú sjálfvirkar inn- og útskráningar í völdum bílastæðahúsum.

Myndavélar lesa bílnúmerið og skrá þig sjálfvirkt inn og út af bílastæðinu. Gjald fyrir viðveruna eða þjónustuna er svo innheimt í gegnum Parka appið.

Svona virkjar þú sjálfvirkar greiðslur með Keyrt&Kvitt í völdum bílastæðahúsum:
- Ýttu á Keyrt&kvitt merki hægra megin í valmynd
- Virkjaðu þjónustuna með því að haka við valinn bíl
- Stilltuc gildistíma ef við á

Bílastæðahús sem styðja Keyrt&Kvitt
- Bergstaðir
- Hafnartorg
- Kolaport
- Ráðhúsið
- Vesturgata
- Traðarkot
- Vitatorg
- Stjörnuport
- Landsbankinn
- Reykjastræti
- Harpa

‍Meira um Keyrt&Kvitt
Hvernig breyti ég um bílnúmeri í appinu? 
Bættu við bílnúmeri
- Ýttu á Bílnúmerið efst í vinstra horni appsins
- Sláðu inn nýja bílnúmerið
- Ýttu á Vista

Fjarlægja bílnúmer
- Ýttu á Bílnúmer efst í vinstra horni appsins
- Ýttu á Stjórna fyrir valið bílnúmer
-
Ýttu á Eyða
Hvernig kveiki ég á áminningu? 
- Ýttu á valmynd efst í hægra horni appsins
- Ýttu á PRÓFÍLLINN ÞINN
-
Ýttu á Stillingar & áskriftaleið
-
Hakaðu við þá áminningu sem þú vilt fá
Hvernig skrái ég nýtt greiðslukort?
- Ýttu á valmynd efst í hægra horni appsins
- Ýttu á PRÓFÍLLINN ÞINN
- Ýttu á Greiðslukort
-
Ýttu á +Bæta við greiðlukorti
-
Sláðu inn kortanúmer, gildisdag og öryggiskóða (CVC númer)
-
Ýttu á 0 kr. til að hægt sé að staðfesta kortið
-
Samþykktu færsluna sem kemur í banka-appinu þínu upp á 0 kr.
Ég er handhafi P-korts
Ef lagt er á einkareknum bílastæðum sem Parka þjónustar lesa myndavélar aðeins bílnúmer og sjá ekki P-kort í framrúðu.

Til að forðast vangreiðslugjald mælum við með því að greiða fyrir stæðið.

Að heimsókn lokinni er hægt að sækja um endurgreiðslu með því að fylla út endurgreiðslubeiðni. Vinsamlegast sendið mynd af P-kortinu með beiðninni.
Hvað gerist ef ég greiði ekki á staðnum?
Aukastöðugjald er lagt á ógreiddar viðveru á gjaldskyldu bílastæði.

Hægt er að greiða á vefnum allt að 24 klst eftir viðveru á flestum gjaldsvæðum sem Parka þjónustar. Mundu að velja þann tíma sem ökutæki var lagt í stæði.

Ef ekki er greitt fyrir viðveru í bílastæði er send krafa í heimabanka umráðaaðila ökutækis ásamt aukastöðugjaldi. 

Athugið að Parka sér ekki um innheimtu þessara gjalda. Þú getur kynnt þér reglur og sent inn beiðni um niðurfellingu vegna aukastöðugjalda inn á eftirfarandi síðum. 

- Autopay
- Bílastæðasjóður Akureyrar
- Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar 
- Green Parking 
- Gulur bíll
- My Parking

Eitt app, einfaldari greiðsluleið

Sæktu appið