Parka mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar eða fjárhagsupplýsingar (færslur) notenda til þriðja aðila.
Parka mun aldrei láta samskiptaupplýsingar notenda í té þriðja aðila. Parka mun aldrei sjálft nýta samskiptaupplýsingar í öðrum tilgangi en að eiga hófleg og eðlileg samskipti við notendur vegna aðgangs þeirra og notkunar á Parka.
Þrátt fyrir framangreint áskilur Parka sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar, sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar, rekjanlegar eða heimfæranlegar á notendur, og nota sér þær í viðskiptalegum tilgangi, s.s. hér segir:
Vegna rannsókna á umferðarþunga / ökutækjafjölda um tiltekin svæði. Tilgangur þess er m.a. að Parka geti upplýst viðskiptavini og framtíðar viðskiptavini um kerfið, notkunarmöguleika þess, álagsþol og árangur af notkun kerfisins, s.s. hversu hátt hlutfall af ökutækjafjölda kerfið nær að vinna úr, telji Parka það ekki ganga gegn hagsmunum notenda.
Greining á nýtingu Parka snjallforritsins á milli ólíkra gjaldsvæða.
Greining á ferðum (e. location data) bílstjóra leigubíla með Parka Taxi snjallforritinu til að tengja saman farþega og bílstjóra í nágrenni við hvorn annan og mæla ferðir.
Þrátt fyrir framangreint áskilur Parka sér einnig rétt til að afhenda upplýsingar notenda til þriðja aðila ef:
Parka ber að gera það samkvæmt lögum.
Ef lögregla óskar eftir upplýsingum þegar um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða.
Parka er keypt eða sameinast öðru fyrirtæki en aðeins í samræmi við ákvæði þessarar upplýsingaöryggisstefnu (þannig að nýja fyrirtækið reki sambærilega þjónustu áfram með sömu skilmálum).
Í þeim tilfellum þar sem Parka er ekki rekstraraðili gjaldsvæðis sem greitt er fyrir þá sendir Parka upplýsingar um greiðslur á rekstraraðila svæðisins. Um er að ræða bílnúmer, tímasetningu greiðslu og hluta kortanúmers fyrir rekjanleika færslu og til samanburðar við viðburði á svæðum.
Notendaskilmálar og upplýsingaöryggisstefna Parka verður ávallt aðgengileg á vefsvæði parka.is
Parka áskilur sér rétt til að breyta upplýsingaöryggisstefnu þessari eftir þörfum og án sérstakra tilkynninga.
Fyrir frekari upplýsingar um gögn og meðhöndlun gagna getur þú sent póst á
data@parka.is