Rafrænt bókunarkerfi
Parka Camping er sérhannað fyrir íslensk tjaldsvæði og er sveigjanlegt eftir þörfum rekstraraaðila. Markmið kerfisins er að hjálpa rekstraraðilum að veita gestum tjaldsvæðanna enn betri þjónustu.
Sjálfvirk bókun
Forbókun
Ferðskrifstofur og fólk í ferðahugleiðingum geta forbókað tjaldsvæðið og skipulagt ferðalagið fram í tímann. Rekstraraðili sér um að stilla forbókunartíma eftir rekstri, tímabilum eða vinsældum.
Aðgangsstýring
Möguleiki er á að tengja bókunarkerfið við hlið og hurðar þannig tryggt að eingöngu gestir svæðisins hafi aðgang að svæðinu.
Mælaborð
Í mælaborði Parka Camping fæst gott yfirlit yfir bókanir tjaldsvæðisins. Þannig er hægt að gleðjast yfir fyrirsjáanlegum gestafjölda og skipulagt starfsmannaþörf.
Sveigjanlegt kerfi
Parka Camping er notendavænt bókunarkerfi sem er sveigjanlegt eftir eiginleikum tjaldsvæðisins.
Upplýsingagjöf
Gestir fá sendan staðfestingapóst og kvittun við bókun á tjaldsvæðið. Þar getur rekstraraðili komið mikilvægum skilaboðum til gesta, um reglur tjaldsvæðisins, áhugaverða staði í nágrenni, opnunartíma þjónustu í nágrenninu o.þ.h.
Með nýtingu greiðslugáttar Parka geta rekstraraðilar valið um að fá vikulegt eða mánaðarlegt uppgjör. Við getum einnig séð um að endurgreiða gestum svæðisins fyrir ónýtta viðveru sé þess óskað af rekstraraðila.
Parka Camping heldur utanum allar gistnætur svæðisins. Rekstraraðilar geta valið um að senda sjálfir gistináttaskýrslur til Hagstofu úr bókunarkerfinu eða látið okkur hjá Parka sjá um það.